30október

OKT!

Æji ég er að spá í að byrja að nota þetta aftur...
30. október 2007 klukkan 09:34
Páll Ţor Pálsson
Almennt
1 athugasemd
24júlí

Picture me rollin'




Hey everybody.



Ókei, ég er ekki á MÓTI því að það sé farið vel með þetta land, og ég er ekki heldur þessi dæmigerði umhverfisverndarsinni....af því að ég er raunsær og veit að fólk lifir á penungunum sem það hefur í vasanum en ekki góðum hugmyndum sem það geymir í hausnum á sér. En come the fuck on! Síðan hvenær ÞURFA mómæli að hafa stórt feitt samasem merki við ofbeldi og skemmdarverk. Grow up and make a real difference...

ég er ekki úr borginni svo ég ólst upp vitandi hvernig það er þegar ein gerð atvinnu heldur heilu bæjarfélagi á lífi. Og þegar fólk getur valið á milli atvinnuleysis og fólksflótta eða nýrrar atvinnu sem  getur bjargað því, þá  fórnar það ýmsu til þess að halda  sér og sínum gangandi. Og það er fólkið sem maður þarf að taka mark á. "Saving Iceland - not Icelanders"....get a fuckin' job. Og ég er ekki að setja spurningamerki við málstaðinn...bara aðferðina til að koma honum á framfæri. enginn hlustar á vandræðaunglinga.

---------------------------------------------------------------------------------
Crazy fanatic mode off
---------------------------------------------------------------------------------

Búið að vera mikið að gera undanfarið og ég ætla að reyna að muna sem flest, þar sem ég er ekki duglegri en það að ég blogga á 2 vikna fresti. Ég er bara að gera þetta the right way. Quality over quantity.

Ég kíkti aftur á Akureyri þarsíðustu helgi, ég var í stuttu en góðu sumarfríi og notaði tækifærið og kíkti á fólkið mitt þar, Inga og Huldu, Bryngeir, Sigga, Atla, gísla, Erlu, Önnu Lóu...ummm...og einhverja fleiri sem ég man ekki eftir nákvænlega núna. Mjög ljúft...mjöööööööög ljúft.

*Kíkti á mjög einmanalegt Sensation djamm, þarsem það er víst meira töff að fara á 90's húllumhæ í Sjallanum. (og takið eftir notkun minni á orðinu húllumhæ, það lýsir þessu ágætlega)
*Reykti úr tyrkneskri vatnspípu...tóbak með ávaxtabragði, það var freaky. RIP water pipe.
*Kíkti 2x á Greifann og borðaði góðann mat.
*fór á Mývatn með liðinu og við skelltum okkur í svona hot spring gjá og syntum þar í alltof heitu vatni.
*Hafði það gott öll kvöldin ;)
*Kíkti á ljósmyndarúnt með Inga og setti inn nokkrar myndir hérna fyrir neðan.
*Skilaði mér svo aftur í borgina og er búinn að vera á góðu chilli með Hauk brother og lesa mikið og horfa mikið á TV.

Da pictures :

bridge   sunset cranes   oldcar1   Zen Siggi   elec   volvo


endum þetta svo á smá krúttlegheitum, ég og Emma að horfa á Barnyard eða "Mu" einsog hún heitir í 2ára þýðingunni. awwwwww....

  e&P

Og svo smá linkage til að enda þetta :

Buck 65 - Poop My Pants - Gaur að gera grín af buck 65...góður texti samt.

"Smells like candles, secret meetings, I just wanna tour de France/
"Riding bikes, mountain stages, Last name Armstrong, first name Lance"

Iphone is a piece og shit. - Maddox bjargar heiminum.

Ka-Blamo! og Stork Patrol - Gaurarnir á ThelonelyIsland.com að gera góða hluti. Ooooooh yeah!

PEACE!
24. júlí 2007 klukkan 01:13
Páll Ţor Pálsson
Almennt, Sögur, Tónlist
3 athugasemdir
09júlí

Update...




Hæhæ!

Mikið búið að vera að gerast undanfarið og ég ætla að reyna að muna eins mikið og ég get, annars megið þið láta mig vita ef ég er að gelyma einhverju ótrúlega merkilegu.

* Er orðinn verslunarstjóri, hell yeah! Part of the system...cog in the machine...og allt það.

*Fór á Akureyri í afmælið hans Atla þarsíðustu helgi og það var algjör snilldar meistara helgi sem gleymist seint. Ég og Haukur keyrðum eftir vinnu.
  Atli og Siggi elduðu fyrir mig, ég hitti nýtt fólk ;) gerði nýja hluti og allt það.
  Á föstudeginum var partý hjá Sigga og laugardagurinn fór í partý í kjallaranum fyrir neðan Sjallann og svo aftur partý hjá Sigga, sem endaði með ósköpum!
  Veðrið var moðerfreakin geggjað og mætti alveg halda þannig áfram.
  Ég hef samt ekki séð neinar myndir úr partýunum svo ef einhver hefur link á þær...then i want to see!!!

1   2   2   4   5   6

*Fór á Akranes á föstudaginn síðasta og hitti þar Sigga, Aigvalda og Atla...og marga fleiri. Sóðalegt djamm og mikið um slagsmál, fæv ó og læti.
  Beilaði á laugardeginum þar sem ég var orðinn eitthvað slappur og þreyttur og höndlaði ekki að keyra aftur á Akranes, en fékk Óttar og félaga hans í  heimsókn í staðin og við chilluðum hér fram á nótt

7   8   9

Orð of the weekend : "LöLö", "kókó" og "glæpon"
Setning of the weekend : "Ég held að einhver sé að díla hérna..."
Sketch of the weekend : "Handalausi gaurinn"
Playah of the weekend : "Siggi" ...hahah!

Ekki gleyma myndasíðunni minni góðu :     http://www.photo.net/photos/Digerati
Eða myspace-inu mínu :             http://www.myspace.com/hugleikurMC
09. júlí 2007 klukkan 19:45
Páll Ţor Pálsson
Almennt, Sögur
6 athugasemdir
11júní

Einhversstađar einhverntíman...




Hæ...

Ég er alltaf að klikka á að koma hérna inn reglulega, þetta er að verða svona hálfsmánaðarlegt blogg. Rosalegur dugnaður það...

Ég er búinn að vera að gera helling síðustu vikur og daga, og hérna er eitthvað af því, og svona það sem ég er búinn að vera að pæla í :

* Ég kíkti í húsdýragarðinn og fjölskyldugarðinn með familíunni, það var mjög skemmtilegt...minnti mig á New York...sem er ekki skemmtilegt.
* Ég fór í PaintBall um helgina sem var Awesome, fékk bara eitt skot í mig allann tímann og mitt team slátraði þessu 7-1. Náði meira að segja nokkrum headshottum, það var mjög ánægjulegt ( fyrir mig). Ég fékk eitt skot í hálsinn en það sprakk ekki svo það telur ekki. En það var sárt.
* Kíkti í veiði nokkrum sinnum með Hauki, náðum nokkrum góðum hérna uppi hjá Reynisvatni, ansi þægilegt að geta skutlast í veiði svona á kvöldin.
* Ég er byrjaður í körfubolta aftur, og ætla að gera það einsog nutcase þangað til ég keyri mig út, eða þangað til ég kemst í form. Workin out is haaarrrddd.
* Mig langar á djammið...en mig vantar fólk sem ég get gert það með, þvílíkt ástand.
* Ég veit ekkert hvernig þetta verður með sumarfrí hjá mér, og hvað ég á að gera. Kannski ég sleppi því bara alveg.
* Mig fór að langa að fara á Roskilde nákvæmlega þegar miðarnir voru uppseldir. Typical ME.
* Ég sakna fullt af fólki sem er fyrir norðan, sem þarf bara að koma suður. Þetta er til þín Atli og Siggi og Sóley og Gunni og Dolli og Nonni og Hlynur og Heiðrún og Ingi og Hulda og Anna og allir hinir sem ég sé aldrei lengur.
* Ég kem líklegast norður um mánaðarmótin, og þá á Atli ammæli...og þá verður gaman.
* Ég spila orðið á píanó á hverjum einasta degi og er orðinn ansi fær þó ég segi sjálfur frá. Það er ótrúlegt hvað smá dugnaður og ákveðni kemur manni langt.
* Bæ...


I wish the earth would swallow you, and all that i remember...
11. júní 2007 klukkan 00:36
Páll Ţor Pálsson
3 athugasemdir
28maí

Summertime...and the weather is freeeeziiinnnggg...

Yo!

Komið smá stund síðan ég bloggaði síðast, best að fara yfir það sem ég er búinn að vera að gera undanfarið :

Ég var að keyra hérna í borginni um daginn og er undir brúnni þarna hjá Húsgagnahöllinni uppi á höfða þegar ég sé að það er hvítur bíll að keyra beint á móti mér, og þá meina ég á móti allri umferðinni og á svona 120km hraða! Ég rykkti bílnum til hliðar og rétt slapp við að klessa á gaurinn og svo var ég nálægt því að lenda á brúnni líka, næsta sem ég hugsa er svo auðvitað að snúa við og ganga frá ökumanninum en gat hvergi snúið við og mætti svo löggunni...svo ég hætti við. Fleiri bílar neyðast til að keyra út í kant eða út á gras til að forðast gaurinn og amk 2 bílar sem ég sá skemmdust lítillega. Stuttu seinna mætti ég svo sjúkrabíl og tveimur lögreglubílum í viðbót sem náðu honum við Grafarholtið. Og það skrítnasta við þetta er að ég hef hvergi séð minnst á þetta í blöðum eða öðrum fjölmiðlum, þó mikið hafi verið talað um einstaka áreksta og drunk-driving. Ætli þetta hafi ekki verið eitthvað uppkókað celeb á einhverju flippi. Who knows?...

Siggi kíkti á mig núna um helgina áður en hann flaug út til Krítar (og mér líður einsog asna að hafa ekki farið með),  hann fékk "gistingu" hjá mér og endaði svo á að sofa allstaðar annarsstaðar, hehe. Þvílíkur playah!

Ég skutlaðist á Akureyri að klára að ganga frá mínum málum þar, hitti Önnu aðeins og fékk ansi góða hjálp frá Nonna kallinum og þakka honum fyrir það, TL-Crew rocks! ÉG hitti samt engann annann og biðst innilega afsökunar á því...ég hafði bara ekkert choice því ég þurfti að fara strax suður aftur. Nú á allt að vera frágengið og svona...nema sko...þarna....hvað heitir það aftur....ó já LÍFIÐ mitt...best að fara að kíkja á það.

Svo gerði ég ansi merkilegann hlut í síðustu viku, og það var að fara í aðgerð. Jebb....ég fór í aðgerð og var svæfður og allt. Ég ætla samt ekki að segja af hverju og þeir sem vita það mega bara halda því innan klíkunnar. Þið megið samt endilega giska á hvað ég var að gera :) Það er stórskrítið að vera svæfður og ég man ekkert sem gerðist svona 5 mínútum áður en svæfingin fór í gang, það finnst mér skrítið...og scary.

Svo enda ég þetta á smá myndaseríu sem ég tók þegar ég passaði Emmu frænku mína um daginn, æðislegasta manneskja sem ég þekki.

e1  e2
e3 e4
e4  e5
e7
28. maí 2007 klukkan 21:39
Páll Ţor Pálsson
4 athugasemdir
19maí

The year of lost loved ones...




2007....vont ár.

Bless Pési. Ég á eftir að sakna þín.

Pési - RIP 2007

Pési - 2005-2007 - R.I.P
19. maí 2007 klukkan 21:56
Páll Ţor Pálsson
Almennt
3 athugasemdir
13maí

The summer of letdowns...

Hæ...

Ég er alls ekki búinn að vera nógu duglegur að sjá um þessa síðu svo ég ætla að bæta fyrir það með einu góðu bloggi.

Kosningar búnar og allir bara fegnir held ég, fólk verður allt öðruvísi og fer að troða sínum skoðunum á aðra eins og það sé allt í einu bara allt í lagi þessar kosningavikur, mér er alveg sama hvað fólk kýs og mitt athvæði er einmitt það...MITT. Og ég kaus engann. Og hef fjandi góðar ástæður fyrir því.

Það er ekki til neinn flokkur sem er svo ótrúlega sammála mér í einu og öllu að ég get gefið honum mitt atkvæði, og ég skil ekki af hverju ég ætti að kjósa heilann flokk bara af því að ég styð einn eða tvo aðila eða er sammála 1 af 10 atriðum sem sá flokkur vill koma í gagnið. Svo ég skilaði auðu og er sáttur við það. Og ef mitt atkvæði hjálpaði einhverjum flokki meira en öðrum þá er það ekki mitt mál. Kjósum einstaklinga á þing...ekki flokka.

Og Eurovision er fyndið fyrirbæri, og ég þarf ekki að segja meira um það :) Það gengur bara betuuurrr nææææææst! Sverrir Stormsker reddar essu.
________________________________________________________________________

Ég er búinn að gera ýmislegt undanfarið,

*Ég skrapp norður yfir eina helgi, og það var erfitt...erfiðara en ég hélt. Get ekki farið þangað aftur nema í mesta lagi svona yfir helgi. Hitti Önnu aftur, skrapp á djammið og gisti hjá Inga og Huldu sem eru bezt í heimi.

*Byrjaði svo að vinna aftur og er bara mjög sáttur við það. Líður vel í vinnunni og skemmti mér bara ágætlega.

*Ég og Haukur fengum svo Atla og Sigga í heimsókn þessa helgi. Ég bauð þeim í mat og eldaði Hrygg, brúnaðar kartöflur og sósu (thats right!) Við horfðum ekki á Eurovision og fórum svo niður í bæ, skiluðum okkur svo heim um 5 leitið.

1   2   3
4   5   6

Þú átt að hlusta á : Björk - Volta
Þú átt að horfa á :  How I Met Your Mother
Þú átt að skoða : Orbo sem gæti breytt heiminum
Þú átt að : Kommenta...




13. maí 2007 klukkan 23:13
Páll Ţor Pálsson
Almennt
5 athugasemdir
28apríl

Vor...





-VOR-


Líttu björtum augum frelsið sem þig fyllir von og jákvæðni/
því sjónin versnar smám saman á meðan tíminn fram færist/
geymdu það á góðum stað því þessar góðu minningar/
þær enda annars brotnar eins og niðurníddar byggingar/

finndu fyrir hitanum sem kom til þín með vorinu /
leyfðu honum að bræða þig og breyta þínum skoðunum /
sumarið er stutt og alltof snemma er haustið komið
það sem dó um kaldann vetur lifnar aftur við um vorið /

ég var alveg búinn, en er nú kominn aftur/
ég var við það að drukkna því ég sá ekki að ég var staddur /
mitt í svörtum sjó og barðist við að berja niður öldurnar/
alveg sama, þó gæfi andann upp á köldum stað/
hringsnérist, á leiðinni niður þetta niðurfall/
lagði skóna á hilluna því allt hafði ég upplifað /
hamingju sem virkaði eins og eiturlyf á sálina /
sorg, sem breytir rólegum í brjálaða
forvitni, sem sendi mig alla leið að heimsenda /
eftirsjá, sem síðan sendi mig til baka /
en ég hafði ekki reynsluna, hafði ekki upplifað/
í raun var rétt að byrja, það besta ekki uppgötvað/
þurfti að fara lengra, í átt að birtunni/
þurfti að loka augunum, og treysta á innsæið/
þufti að safna kröftum, svo ég gæti staðið upp
komið aftur tvöfalt betri og náð aftur mínu jafnvægi/
svo ég reimaði á mig skóna, synti á móti straumnum/
lagið sem hér hljómar, er þinn baráttusöngur/
tilfinningin sem tapaðist þegar þú tapaðir sporinu/
hún kemur alltaf aftur, hún snýr aftur með vorinu/



emma ósk og pési   frustration   rainbow    bowling
28. apríl 2007 klukkan 14:46
Páll Ţor Pálsson
Sögur, Tónlist
3 athugasemdir
23apríl

23.04.07-19.57

Yo!

Alltof langt síðan síðast en ég hef alveg beilað á því að nenna að skrifa eitthvað hingað inn í....ummmm....9 daga. Ekki góður árangur það. Okei hvað er ég búinn að vera að gera?

Ég kíkti á tónleika um daginn með Kolla, Rut og Hauki á Rósenberg þar sem tónverkið Pétur og Úlfurinn var spilað í heild sinni en ég man engann veginn hvað strákarnir sem settu þetta upp kalla sig.  En þetta var samt mjög töff og margir flottir kaflar í þessu showi. Keypti CD-inn og allt á eftir. ÞAð er hægt a'ð kaupa hann í 12 tónum held ég alveg örugglega og ég mæli alveg með því.

aö


Ég varð líka alveg sjúklega forvitinn um hvaða hljómborð var verið að nota og eftir smá rannsókn komst ég að því að þetta var Nord Electro 2 snilldargræja sem mig langar í. En það verður ekkert þannig á dagskrá næstu öldina eða svo :)

                       
nord2


Sunnudagurinn fór svo í krossara þar sem ég kíkti með Guðný á Sólbrekkubrautina rétt fyrir utan Kef og það var mjög gaman. Þetta er Greheinilega eitthvað sem auðvelt er að detta inn í og verða alveg hooked á. Ég þarf að vanda mig ef ég á ekki að enda handleggsbrotinn í skurði einhversstaðar í sumar. Býst samt við því. Við hittum þar Jóa sem rekur síðuna www.Jóikef.com  og það endaði á því að ég tók fullt af myndum fyrir hann sem ég set svo á síðuna hans á næstunni. Hérna er smá sýnishorn :

1   2   3   4


Þú átt að hlusta/horfa á : Amy Winehouse & Paul Weller - Don't Go To Strangers - Chills!
Þú átt að downloada : Busdriver - Sunshower edIT Remix - Production from hell.
Þú átt að hlæja af : Ofvirka Beatboxaranum - Take it easy dude!
Þú átt að kaupa : Nord Electro 2 - Og rokka það 70's style.
Þú átt að prófa : Motorcross - Og brjóta amk 1 bein.

Takk fyrir mig...
23. apríl 2007 klukkan 20:33
Páll Ţor Pálsson
Almennt, Tónlist
1 athugasemd
16apríl

I wear glasses...

Ég nota gleraugu.

Fór að nota þau fyrst í 10 bekk þegar ég komst að því að ég sá ekki á töfluna, og þar sem ég sat auðvitað aftast "like the cool kids" þá var ekki tekið í mál að færa sig bara framar. Nooo.
Það var auðvitað miklu auðveldara að gera gleraugu bara kúl og hip  svo ég skellti mér á eitt par. Og heimurinn varð aldrei samur.

Það sem er mest töff við að vera með gleraugu er að þegar maður opnar ofn þá kemur móða á þau sem veldur því að maður sér ekki neitt og hrasar og dettur...stundum inn í ofninn og stundum bara með ennið á hurðina.

Þegar maður er á djamminu og það er annaðhvort kalt eða rigning eða sjókoma...eða bara eitthvað annað en 20 gráðu hiti og logn, þá fyllast þau af móðu um leið og maður labbar inn á einhvern stað. Gefur staðnum svona nettann porn movie fíling. Ógeðslega töff.
 Svo þarf maður að taka þau af sér til að þurrka þau og þá sér maður ekki neitt á meðan. Þá eru allir fallegir.

Maður fær svona töff far á milli augnanna þar sem gleraugun liggja, það er bara töff.

Ég þarf að nota linsur þegar ég spila fótbolta körfubolta eða krullu (??) og það fokkar illa í hausnum á mér og ég þarf oftast að borga fyrir það með geðveikt mögnuðu mígreniskasti. U can die of that u kno?...

Hvað kostar miði til Tókíó og lazer augnaðgerð ?

______________________________________________________________________________________

Svar við Clickety Clack póstinum mínum :

"Netlöggan skrifar ...
Skráð í dagbók Netlöggunar. Kæra í vinnslu. "

Alltaf gaman að fá svona póst, vildi óska að þetta væri í alvörunni Ríkislögreglan að hóta mér. Það gekk svo vel hjá þeim síðast þegar þeir böstuðu einhvern :) Bring it on! And you can quote me on that. Bring your balls police man....bring them both.
En því miður þá er þetta einhver joker sem fattaði ekki að heimasíða ríkislögreglunnar er RLS.IS en ekki RLR.IS, þeir eru ekki með netþjón og þetta lén er ekki virkt lengur og allt sem tengist afbrotum af þessu tagi (ef afbrot má kalla) er höndlað af TMD.IS. Better luck next time. Gruna hver þetta er samt....hehe.


16. apríl 2007 klukkan 20:08
Páll Ţor Pálsson
Almennt, Sögur
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Hinar Síđurnar mínar

http://photo.net/photos/Digerati
http://www.myspace.com/hugleikurmc

Auglýsing

Leit